Tengingin við TEDx vekur athygli en eru reglurnar þeirra of strangar eins og Jón Grétar bendir á í umræðuþræðinum. Hann segir m.a. að TEDx á allan rétt á útsendingum sem gerir það að verkum að erfitt eða jafnvel ómögulegt er að fá þetta birt í sjónvarpi.

3 óákveðnum fannst þetta gagnlegt.

Láta næsta TEDx Reykjavík vera með þema sem gengur út á: “Hvernig ég kom hugmyndinni í framkvæmd” Fá flóru af ólíkum frumkvöðlum sem fóru alla leið með sína hugmynd í listum, vísindum, menningu og viðskiptum. Gæti verið innblásturinn sem margir vilja fá þessi misserin.

Nú vantar bara sjálfboðaliðana til að taka þátt í að gera þennan viðburð að veruleika! Meldið ykkur hér!

2 óákveðnum fannst þetta gagnlegt.

TEDx Reykjavík þann 6. okt síðastliðinn var svo ótrúlega jákvæður og skemmtilegur viðburður og mjög fræðandi. Því fleiri jákvæðir og uppbyggilegir viðburðir á Íslandi því betra. Það þurfti bara að drífa í því að setja upp undirbúningsfund (eins og í fyrra) til að finna fólk sem er tilbúið að taka þátt í að framkvæma. Því fyrr því betra.

1 óákveðnum fannst þetta gagnlegt
Hugmyndaráðuneytið: Ráðuneyti grasrótarinnar. Byggjum upp næsta Ísland

Það er auðvelt að taka þátt. Gerstu meðlimur og byrjaðu að raða niður atriðum eftir mikilvægi, eins og í aðgerðalista. Því fleiri sem gera forgangsmálin þín að sínum forgangsmálum, því hærra rís það í listunum. Því fleiri sem gerast meðlimir í samskiptanetinu, því meiri kraft höfum við til að láta hlutina gerast.