Hjörtur setti inn upplýsingar Thu Feb 11 13:03:43 +0000 2010 1 comment
17kp
Hjörtur Thu Feb 11 13:03:43 +0000 2010

Ráðherraembætti er samt pólitískt embætti og ekki endilega merki um aukið lýðræði að skipa ráðherra úr röðum utan þingsins. Hins vegar er sjálfsagt að þingmenn sem skipaðir eru ráðherrar afsali sé þingmennsku á meðan. Þá leggur ríkisstjórnin sín mál í raun fyrir þingið án þess að koma að því á þeim vettvangi. Að því leiti styð ég utanþingsstjórn.

Notandi setti inn upplýsingar Wed Feb 10 12:12:01 +0000 2010 1 comment
Buddy_icon_24
0kp
Notandi (styðja) Wed Feb 10 12:12:01 +0000 2010

Vil benda á að forseti skv. bókstafnum skipar ríkisstjórn og ÓRG hefur þannig vald til að skipta stjórn eins og hann vill.

KjartanK setti inn upplýsingar Sun Jan 31 21:45:12 +0000 2010 1 comment
1kp
KjartanK Sun Jan 31 21:45:12 +0000 2010

Framkvæmdavaldið, löggjafarvaldið og dómsvaldið skarast allt kriss kross hér á Íslandi…

Framkvæmdavaldið skipar t.d. dómara(dómsvaldið) og ráðherrar sitja sem alþingismenn á Alþingi (löggjafarvaldinu).

Dómsvaldið túlkar lög löggjafans og á Íslandi er ekki nægilega rík hefð fyrir því að farið sé eftir “hvað löggjafinn ætlaði að ná fram með lögunum” heldur eingöngu farið eftir lagabókstafnum og stundum e-h sem manni finnst vera persónuleg túlkun viðkomandi dómara algjörlega á skjön við tilgang lagana.

Löggjafinn er t.d. í Icesave að taka fyrir hendur framkvæmdavaldsins sem á að vinna eftir lögum Alþingis við lausn deilunar við UK og NL, Alþingi á einfaldlega að þegja og snúa sér að öðru.

Kjararáð er e-h sem hrærist þarna á milli.

p.s. ég er ekki með þetta alveg á hreinu, en minnir að félagi minn sem er klárari í þessu hafi skotið þessu að mér.

gumi50 setti inn upplýsingar Tue Jan 19 13:16:36 +0000 2010 1 comment
-4kp
gumi50 Tue Jan 19 13:16:36 +0000 2010

Samkvæmt skilgreiningu er utanþingsstjórn einhvers konar neyðarráðstöfun þegar ekki tekst að mynda stjórn: http://is.wikipedia.org/wiki/Utan%C3%BEingsstj%C3%B3rn
Utanþingsstjórn er í þingræðisríki ríkisstjórn sem tekur við völdum tímabundið þegar ekki tekst að mynda ríkisstjórn eftir hefðbundnum lýðræðislegum leiðum af einhverjum ástæðum. Utanþingsstjórnir eru skipaðar beint af þjóðhöfðingja og stjórna með stuðningi eða hlutleysi löggjafarvaldsins. Þetta felur í sér að stjórnin lætur sér nægja að sjá um daglegan rekstur ríkisins og forðast umdeildar ákvarðanir.

Júlíus Valsson setti inn upplýsingar Sun Jan 17 16:51:26 +0000 2010 1 comment
Icon_24
41kp
Júlíus Valsson Sun Jan 17 16:51:26 +0000 2010

Vð þurfum að hefja okkur upp fyrir flokkspólitískt argaþras sem er að fara með þjóðina til fjandans.

Hugmyndaráðuneytið: Ráðuneyti grasrótarinnar. Byggjum upp næsta Ísland

Það er auðvelt að taka þátt. Gerstu meðlimur og byrjaðu að raða niður atriðum eftir mikilvægi, eins og í aðgerðalista. Því fleiri sem gera forgangsmálin þín að sínum forgangsmálum, því hærra rís það í listunum. Því fleiri sem gerast meðlimir í samskiptanetinu, því meiri kraft höfum við til að láta hlutina gerast.