|
|
Hugmyndaráðuneytið: Ráðuneyti grasrótarinnar. Byggjum upp næsta Ísland
Það er auðvelt að taka þátt. Gerstu meðlimur og byrjaðu að raða niður atriðum eftir mikilvægi, eins og í aðgerðalista. Því fleiri sem gera forgangsmálin þín að sínum forgangsmálum, því hærra rís það í listunum. Því fleiri sem gerast meðlimir í samskiptanetinu, því meiri kraft höfum við til að láta hlutina gerast. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ég vil vera í evrópusambandinu eins og siðað fólk við töpum engu heldur græðum við á því og fáum nothæfan gjaldmiðil
Hvernig geturðu fullyrt svona? Að við töpum engu? Það má svo ekki láta einhvern skammtíma gróða blinda sig þegar þetta mál er skoðað. Það er ekki víst að Evran verði svo glæsilegur gjaldmiðill eftir 50 ár – þá gæti hún vel verið í svipuðum málum og breska pundið var á sjöunda áratugnum.
Þegar verðmæti hagkerfis og gengi gjaldmiðils þess er skoðað skiptir miklu máli að horfa á náttúruauðlindir og framleiðni. Meðal þess sem við höfum, góður ferðamannamarkaður, gjöful fiskimið, mikið af endurnýjanlegri orku og hreint vatn. Þetta eru allt hlutir sem koma til með að verða verðmætari þegar fram líða stundir og munu því styrkja okkur. Á meðan Evrópusambandið er að horfa fram á það að það er óhugnalega háð kolefnaorku og með sáralitlar koleefnaauðlindir. Þegar olía, gas og kol munu hækka stöðugt í verði næstu 50 árin og hagkerfi eins og Kína, Indland og Rússland eflast og vaxa þá mun það bitna hrikalega á iðnaði í Evrópu.