Nýjustu rök

Feed-icon-14x14 RSS straumur

Danir hafa nú ákveðið að skjöl danska ríkisins muni fylgja opnum stöðlum.
Þetta er á dönsku en við lærðum hana jú öll í grunskóla…

1 aðila fannst þetta gagnlegt.

Að endingu langar mig að benda á að “ísbjarna-vandamálið” gæti verið kjörinn vettvangur til að styrkja bönd við bræður vora í Kanada sem eiga langa sögu í að díla við birni (þó þeirra séu öðruvísi á litinn og ekki jafn hungraðir og þeir sem enda hérna). Nú er ekki tíminn til að sýna þrjósku og þykjast vita allt best. Lærum af þeim sem vitið og reynsluna hafa. Náttúruverndarsinnar og þjóðgarðar um allan heim væru tilbúnir að leggja til sérfræðiþekkingu ef við sýnum þá lágmarks auðmýkt að spyrja.

2 aðilum fannst þetta gagnlegt.

Ég tel ekki ólíklegt að hægt sé að selja rekstrarhugmyndina til erlendra náttúruverndarsamtaka þegar við erum búin að plaffa nokkra ísbirni í viðbót og heimurinn fyllist viðbjóði yfir framgangi Íslendinga gagnvart þessum skepnum í útrýmingahættu. En þau samtök myndu þá fá meirihluta þess jákvæða náttúruverndar orðspors sem annars væri okkar auk ágóðans, ef einhver er. Öðrum kosti væri hægt að gera samning við nálæga bændur um daglegan rekstur eða láta rekstur fylgja einkaleyfi á ferðum um svæðið.

1 aðila fannst þetta gagnlegt.

Fjöldamorð á ísbjörnum eiga seint eftir að verða okkur til framdráttar á alþjóðavísu og náttúrufræðingar virðast sammála um að tíðni þessara vágesta eigi eftir að stóraukast. Ég mæli með að við útbúum einskonar wildlife park þar sem við söfnum þeim saman yfir veturinn og gerum samning við einhver “Free Willy” samtök að sigla þeim heim á sumrin. Túristarnir borga fúlgur fyrir að sjá KANNSKI norðurljós. Ég er sannfærð um að þeir borga fullt af peningum fyrir ísbjarna safarí. Gróði + gott PR!!;)

4 aðilum fannst þetta gagnlegt.

Ísbirnir eru í útrýmingarhættu og stafar þeim sérstaklega mikil hætta af hlýnandi loftslagi. Þegar ísbirni rekur til Íslands er því synd að skjóta þessi grey og væri nær að búa þeim aðstöðu hér á landi í dýragarði, sem myndi styrkja ferðamannaiðnaðinn og um leið vera góður fyrir ímynd Íslands á alþjóðavettvangi.

2 aðilum fannst þetta gagnlegt.

Fyrst og fremst þarf almenningur að krefjast þess að þessar upplýsingar verði gerðar opinberar. Svo legg ég til þess að staðlað verði forritunarviðmót (API) svo hægt verði að sækja þessar upplýsingar á netið. Þannig getur fólkið í landinu fylgst með verðlagi.

Þetta er samt ekki mögulegt nema með stuðningi fyrirtækja í landinu. Hugsanlega að íslensk hugbúnaðarfyrirtæki sem eiga eigin afgreiðslukerfi geti boðið upp á þessa þjónustu.

1 aðila fannst þetta gagnlegt.

Ráðamenn þjóðarinnar, ráðherrar, embættismenn í ráðuneytum þingmenn og aðilar sem að þingsköpum koma hljóti umtalsverða launahækkun.
Jafnframt verði þeim persónulega og mökum þeirra bannað að eiga hlut í fyrirtækjum, sitja í stjórnum, þiggja greiðslur eða starfa sem framkvæmdastjórar fyrirtækja í einkarekstri.
Með hækkun launa myndi hæft fólk sækjast eftir stöðunum en með því að útiloka tengsl útí atvinnulífið væri verið að auka líkur á hlutleysi.

2 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.

Samstaða Íslendinga hefur riðlast. Traustið er farið. Stjórnendur hafa gjörsamlega brugðist. Fólk er orðið vonlaust. Reiðin kraumar undir. Þjóðin rambar á barmi borgarastyrjaldar. Við þurfum nýja von, nýtt sameiningartákn, nýja hugsun, nýtt fólk. Kveðjum gamla Ísland, það var hneppt í þrældóm. Landsmenn eru fastir í viðjum hugarfarsins. Skundum á Þingvöll og skjótum upp nýjum fána sameiningar og nýrrar vonar. Kyrjum nýjan þjóðsöng. Stöndum saman gegn sundrungu! Bylting er yfirvofandi!

1 aðila fannst þetta gagnlegt.

Með nútíma tækni er afar auðvelt að koma markvissum og traustum upplýsingum til almennings. Mikill tími og peningar fara í hringsól fólks um heilbrigðiskerfið, sem í raun er mjög ómarkvisst þótt öðru sé haldið fram. Of margir heilbrigðir einstaklingar gera sér t.d. ekki grein fyrir því að þeir eru ekki veikir. Sjúkdómar eru í raun sjaldgæfir. Með því að þróa aðgengilegt almennt upplýsingakerfi um heilbrigðismál má auka skilvirkni heilbrigðiskerfisins til muna án mikils kostnaðar.

2 aðilum fannst þetta gagnlegt.

Heilbrigð sál í hraustum líkama! þessi litla setning segir svo margt og ég hef haft hana sjálf að leiðarljósi í mínu lífi. Ég er að mynda vinnuhóp þar sem við einbeitum okkur að heilbrigði á öllum sviðum og er eitt af okkar markmiðum að virkja með okkur þá sem þegar eru að starfa að því sama. mín hugmynd er því að stofna samtök sem eru regnhlífarsamtök fyrir heilbrigðan lífsstíl og halda utan um þá möguleika sem eru til staðar nú þegar og bjóða jafnframt uppá nýja.

2 aðilum fannst þetta gagnlegt.

Það er mikilvægt fyrir íslenska þjóð að upp vaxi ný kynslóð sem lærir muninn á því sem ÞARF og því sem það LANGAR. Þetta er slíkt grundvallaatriði að vita sem fyrst til að draga úr gengdarlausu neysluæði. Með auknum skilningi koma betri ákvarðanir og meiri ráðadeild í fjármálum kennir okkur að efnhagslíf hefur hæðir og lægðir. Þegar vel gengur er meira lagt fyrir og þar með dregið úr sveiflum til lengri tíma.

1 aðila fannst þetta gagnlegt.

Í samfélaginu er nánast daglega verið að taka ákvarðanir um málefni atvinnuleitenda. Þeir eru ekki spurðir álits, bara boð og bönn að ofan. Nú er komið að því að við öll atvinnuleitendur á Íslandi snúum bökum saman og stofnum Samtök Atvinnuleitenda. Þeir sem vilja fylgjast með skrái sig í hópinn Samtök atvinnuleitenda / Atvinnuleysi nei takk á Facebook.. Veist þú um einhvern sem er atvinnuleitandi? Ef svo er láttu viðkomandi endilega vita af okkur.

3 aðilum fannst þetta gagnlegt.

Nöfn og orð móta hugmyndir, og hafa þar með veruleg áhrif á ákvarðanir og hegðun. Nöfn og hlutverkum vega þar mjög þungt. Orðið ráðherra gefur þá hugmynd að viðkomandi sé “herra” sem “ræður” sínum málaflokki, sem hefur þá neikvæðu hliðarverkun að fólk í þessum hlutverkum á á hættu að fá þá ranghugmynd að almenningur sé þarna til að þjóna því en ekki öfugt. Okkur vantar nafn á hlutverki sem gefur þá hugmynd að viðkomandi sé í þjónustu þjóðarinnar og beri ábyrgð á sínum málaflokki.

1 aðila fannst þetta gagnlegt.

þeir sem valdir/ráðnir eru til að VINNA á þingi eiga að gera það fyrir þjóðinna ekki að stjórna og stýra yfir hausmótunum á þjóðinni. Ráðherra hefur tvöfalda valdamerkingu og gefur ekki rétta mynd af þessu starfi heldu þver öfug. Legg til að við breytum þessari nafngift hið snarasta. Fleir tillögur að nýju starfsheiti vel þegin, síðan skal ég ganga frá rest!

2 aðilum fannst þetta gagnlegt.

Mér þætti einnig æskilegt að fjarkennsla fengi sömu niðurgreiðslu og annað nám. Mér finnst þessi skólagjöld fyrir fjarkennslu vægast sagt fáránlega há. Svona sérstaklega þar sem það er enginn húsnæðiskostnaður af þessu og efnið má endurnýta milli anna.

Til dæmis: http://www.vma.is/fjarkennsla/page/gjaldskra

Það að vinna fullt starf eða vera heimavinnandi og það að setjast á skólabekk að nýju er nógu erfitt svo maður þurfi ekki að greiða fleiri hundruð þúsund í námskostnað í landi þar sem "nám

2 aðilum fannst þetta gagnlegt.

Hugmyndaráðuneytið: Ráðuneyti grasrótarinnar. Byggjum upp næsta Ísland

Það er auðvelt að taka þátt. Gerstu meðlimur og byrjaðu að raða niður atriðum eftir mikilvægi, eins og í aðgerðalista. Því fleiri sem gera forgangsmálin þín að sínum forgangsmálum, því hærra rís það í listunum. Því fleiri sem gerast meðlimir í samskiptanetinu, því meiri kraft höfum við til að láta hlutina gerast.