|
Nýjustu rök
Fredrik Háren er höfundur hugmyndabókarinnar, hann hefur jafnframt haldið námskeið um skapandi viðskipti. Námskeiðið gæti aukið hugmyndasköpun í Hugmyndaráðuneytinu og fengið fólk til þess að hugsa á nýjan hátt.
Uppruni: http://www.interesting.org
1 aðila fannst þetta gagnlegt.
Við eigum fullt af talent sem vinnur á alþjóðamarkaði. Þetta fólk sem er hokið af reynslu mætir í sumarfrí heim á klakann og þá eigum við að grípa það og halda hugmyndaráðuneytisfundi þar sem ausið er úr reynslubrunninum.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Í ljósi þess að gengistrygging hefur verið dæmd ólögmæt virðist ljóst að húsnæðislán verði á samningsvöxtum (þó um sé að ræða álíka vexti og sumstaðar í Evrópu). Ég tel því að eðlilegast væri að endursamið væri nú á þeim lánakjörum sem í boði eru, en sá tími sem liðinn er frá hruni verði gerður upp á þeim vöxtum sem standi í samningum. Þannig fengju bankarnir í hausinn tap á vöxtum þess tíma sem liðinn er frá hruni, allan þann tíma sem lántakendur hafa borið við forsendubresti.
1 aðila fannst þetta gagnlegt.
Hver og einn veit best sjálfur hverju hann þarf að bæta við sig ef hann vill læra meira. Einstaklingar sem læra saman í hópi komast að sameiginlegri niðurstöðu um innihald námsins og vinna lýðræðislega. Útkoman er skemmtilega skapandi, gagnleg og ekki síst eflandi. – Námshópurinn yrði aðallega fólk með fremur stutt formlegt nám að baki, en getur verið breiður. Námið er sjálfkrafa í sífelldri endurmótun og sannanlega lifandi. Verður þar dans, handverk, reikningur, ræktun eða stafsetning? Annað?
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Mikið efni er til um nýsköpun, en erfitt getur verið að nálgast það á einum stað. Nýsköpunarbókasafn gæti verið staður þar sem fólk gæti skoðað efni í formi bóka, myndbanda, fréttaumfjöllunar ofl. Safnið gæti jafnvel verið í netformi og fólk skoðað upplýsingar sem tengjast stofnun fyrirtækja, fyrirlestrum sem haldnir hafa verið og nýsköpunarumræðu.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Rúturnar til og frá Keflavíkurflugvelli eru ekki nógu nytsamlegar og eiginlega of dýrar núorðið. Flestir Reykvíkingar kjósa að láta skutla sér, og það hefur í för með sér margar mengandi bílaferðir. Flestir sérfræðingar eru sammála um að náttúran getur orðið mjög fyrir skaða ef ekki er verulega dregið úr gróðurhúsalofttegundum. Bílar eru aðeins einn hlekkur í stórri keðju, en hver bíll skiptir máli og um að gera að stuðla að grænu samfélagi.
Uppruni: http://www.thegreenguide.com/
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Ég vill að Reykjavíkurborg og Akureyrarbær geri samning við háskóla landsins (Háskóla Reykjavíkur og Háskóli Akureyrar) og fleiri . Samningurinn hljóðar upp á að þeir vinni að hönnun og þróun á tækni á rafknúnum lestarvögnum og braut á milli Reykjavíkur og Akureyrar. Hugmyndin væri þannig að það væru nokkrir litlir vagnar sem tækju 25-50 manns og þeir mundu skjótast á milli staða en ekki þessi týpíska lest þar sem einn vagn dregur aðra. það þurfti líklega að hanna púpu utanum lestina vegna snjó
1 aðila fannst þetta gagnlegt.
Það væri upplagt að bæta þessum möguleika við skuggaborg.is, og gefa fólki einnig möguleikann á að greiða atkvæði með/og móti framkvæmdum. Kosturinn við þetta er að þessir hlutir eru eins “concrete” og þeir gerast, og því engin ástæða til annars en að nota hugmyndir og forgangsröðun íbúanna í lagfæringum.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Þessi hugmynd kom þegar ég las grein á pressunni um hversu niðurnýtt Seljahverfið í Reykjavík er orðið.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Kjósendur framboðsins ráða hvernig þingmenn listans greiða atkvæði í einstökum málum. Lykillinn er netið, því nú er tæknilega einfalt og öruggt að kjósa um netið. Þingmenn framboðsins hafa það hlutverk að skilja og skýra málin fyrir kjósendum á vel hönnuðu vefsvæði. Þar setja þingmenn (og kjósendur) fram kosti og galla og sína afstöðu til málanna. Síðan kjósa kjósendur framboðsins um vefinn.
1 aðila fannst þetta gagnlegt.
Þeir eru með svona seedcamp sem byggir á http://www.techstars.org/
Uppruni: http://www.startupbootcamp.dk/
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Hvernig væri að halda mánaðarlega hristing á milli hugmynda- og listamanna í anda ‘SONGS FOR EATING AND DRINKING’ – sjá: http://www.songsforeatinganddrinking.com/about/ Gæti verið gaman að blanda þessum hópum saman, mánaðarlega. Festa þetta alltaf inná aðra vikuna í mánuðinum.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Tillaga er lögð að því að fjórskipta þemu fyrir hvern mánuð í samskiptaneti Hugmyndaráðuneytisins. Það er ljóst að áhugafólk á sviði nýsköpunar er með mismunandi áhuga. Þar kemur jafnt inn nýsköpun hjá sportafyrirtækjum og í stjórnsýslu. T.d.: Þannig væri auðveldara að skipta niður undirbúningi á vikulegu fundina. Þannig væri hver ritstjórnar hópur aðeins að sjá um 12 fundi á ári.
1 aðila fannst þetta gagnlegt.
Seðlabankar búa bara til um 3% peningamagns í umferð á meðan bankarnir lána út tölur í rafrænu kerfi, þar sem litlir raunverulegir peningar eru til. Þetta er meginskýringin á hruni bankanna ekki bara á Íslandi heldur einnig í löndum eins og Bretlandi, USA og öðrum löndum. Sjáið Ben Dyson útskýra, hvað þetta er och hvernig þetta virkar og hvað þarf að gera til að stöðva fjármálakreppur framtíðarinnar.
1 aðila fannst þetta gagnlegt.
Þetta væri líklega mest fyrir ferðamenn, en það mætti etv bjóða upp á þetta í kjörnum fyrir þá sem hafa áhuga á að hjóla frá td Mjódd niður í bæ.
Uppruni: http://www.bcycle.com/
1 aðila fannst þetta gagnlegt.
|
Hugmyndaráðuneytið: Ráðuneyti grasrótarinnar. Byggjum upp næsta Ísland
Það er auðvelt að taka þátt. Gerstu meðlimur og byrjaðu að raða niður atriðum eftir mikilvægi, eins og í aðgerðalista. Því fleiri sem gera forgangsmálin þín að sínum forgangsmálum, því hærra rís það í listunum. Því fleiri sem gerast meðlimir í samskiptanetinu, því meiri kraft höfum við til að láta hlutina gerast. |
||