|
Það sem allir eru að tala um hjá Hugmyndaráðuneytið
Ef þú vilt taka þátt, vinsamlegast gerstu áskrifandi. Aðild er ókeypis og þú getur líka tengst í gegnum Facebook.
|
Hugmyndaráðuneytið: Ráðuneyti grasrótarinnar. Byggjum upp næsta Ísland
Það er auðvelt að taka þátt. Gerstu meðlimur og byrjaðu að raða niður atriðum eftir mikilvægi, eins og í aðgerðalista. Því fleiri sem gera forgangsmálin þín að sínum forgangsmálum, því hærra rís það í listunum. Því fleiri sem gerast meðlimir í samskiptanetinu, því meiri kraft höfum við til að láta hlutina gerast. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Sem stendur getur fólk ekki valið að breyta eftirnafni sínu að eigin ósk.
Einungis er hægt að velja vera sonur eða dóttir líffræðilegra foreldra sinna.
Ég þekki til eins aðila sem er feðraður manni sem er hvergi til í þjóðskrá.
Hann þekkir móður sína ekki neitt, og var alinn upp af ættingjum sínum.
Nú vill hann taka upp ættarnafn, þetta nafn hefur mikið verið notað sem millinafn í fjölskyldunni hans. En það er ekki hægt.
Þá bað hann um að fá að breyta millinafni sínu í eftirnafn, en það er heldur ekki hægt.
Þegar að hann benti á það að hann hefði verið ólöglega feðraður manni sem er ekki til og ætti engin tengsl við kynmóður sína, þá rak þá á sker.
Það er fullt af fólki sem að vill ekki vera nefnt eftir foreldrum sínum af einni eða annari ástæðu, það vill ekki kenna sig við neinn.