|
Hugmyndaráðuneytið: Ráðuneyti grasrótarinnar. Byggjum upp næsta Ísland
Það er auðvelt að taka þátt. Gerstu meðlimur og byrjaðu að raða niður atriðum eftir mikilvægi, eins og í aðgerðalista. Því fleiri sem gera forgangsmálin þín að sínum forgangsmálum, því hærra rís það í listunum. Því fleiri sem gerast meðlimir í samskiptanetinu, því meiri kraft höfum við til að láta hlutina gerast. |
|
Það er rétt hjá Helgu Rakel að almenningur á ekki að taka þessa áhættu beint enda er verið að benda á að það eigi að setja upp sjóð sem er milliliður sem leggur mat á tækifæri og svona. En þetta er allt ansi stór spurning hérna á Íslandi. Hérna eru ansi erfiðar aðstæður til að reka VC eða annað í þeim geira. Það er einfaldlega erfitt að reka þannig apparat á petite markaði eins og Ísland er. Það er of lítið dealflow til að hægt sé að gera það með góðu móti. Einnig eru flest önnur form sem reynt hafa verið ansi erfið og næstum því bókað að þau munu ekki bera sig til lengri tíma. Þetta hafa ótal tilraunir sýnt framá. Þessi umræða endar oftast á því að ríkissjóður eigi því að sjá um þetta. Það er einnig óhentugt því að ekkert er verra en að láta embættismenn meta svona t.d. er fáranlegt að vera að setja fjármagn í sprota og matsmenn ríkisins sem að metur það hittir ekki einu sinni teymið, sem er jú atriði nr 1 að skoða. Allt þetta hefur sína galla og kosti. Það sem eftir situr er spurningin viljum við byggja upp nýsköpun á Íslandi eður ei – og það er nokkuð víst að allir vilja velferðarkerfi og eg veit ekki hvað, en flestir sem átta sig ekki á að til þess verður stöðugt að setja niður útsæði sem síðan kemur misvel undan vetri. En ef ekkert útsæði er sett niður er staðan enn verri. Það er alveg ljóst. Það er t.d. nokkuð ljóst að ef flestar af þeim gíruðu yfirtökum hefðu verið byggðar á nýsköpun SCA hefði farið betur í seinustu bólu. Mín skoðun er að það verður að búa til kerfi þar sem hægt er að virkja reynslu meiri frumkvöðla sem myndu fóstra reynsluminni sprota við að komast af stað, og aðkoma þeirra væri gíruð með public fjármagni. Þetta eru bretar að þróa í dag í gegnum Nesta og ég held að við ættum að fylgjast náið með þessari þróun þeirra.