![]() |
|
Auðlindahópar Hugmyndaráðuneytisins • Ég ber alltaf ábyrgð á sjálfum mér Þátttakendur Hugmyndaráðuneytisins eru ætíð áhugamenn, en skipuleggjendur hans mega ráða launað starfsfólk. Almennur þáttakandi Hugmyndaráðuneytisins eru ætíð áhugamenn sem vinna að því að bæta samfélagið sem við búum í. Þáttakandi Hugmyndaráðuneytisins raðar sér niður í Auðlindahóp við hans hæfi. Skipuleggjendur Hugmyndaráðuneytisins mega ráða starfsfólk sem heldur utan um Málefni sem Hugmyndaráðuneytið vinnur að. Hugmyndaráðuneytið sem slíkt ætti aldrei að skipuleggja en skipuleggjendur þess geta myndað Auðlindahópa í kringum Málefni samfélagins. Hugmyndaráðuneytið sem slíkt er tímalaust. Það er samfélag samfélagsþegna þess samfélags sem það starfar í með það eitt í huga að bæta samfélagið sem við búum í. Auðlindahópar eru myndaðir um Málefni samfélagsins eftir því sem samfélagsleg þörf kallar á og samfélagsþegnar telja að þurfi að huga að. Í málefnum Auðlindanna er enginn einn leiðtogi, samvinna og virðing fyrir þörfum Málefna ræður árangri hvers hóps. Forsvarsmenn okkar eru þjónar sem við treystum en ekki stjórnendur. Við þurfum að bera virðingu fyrir hvort öðru. Við þurfum að treysta hvort öðru. Forsvarsmenn geta verið breytilegir eftir því hvaða Málefnum er verið að vinna að. Sá besti sem hæfir verkefninu er valinn hverju sinni. Dæmi um Auðlindahópa
Til þess að koma í Auðlindahóp þarf aðeins eitt: Löngun til að bæta samfélagið sem við búum í, við erum öll auðlind. Við komum saman í þeim tilagangi einum að bæta það samfélag sem við búum í. Þegar við komum saman í þessum tilgangi þá erum við að taka ábyrgð á okkur sem samfélagsþegnar í því samfélagi sem við búum í. Við viljum lifa í samfélagi sem er heiðarlegt og heilbrigt. Hvert okkar er Auðlind og saman myndum við Auðlindahóp í þeim Málefnum sem við erum best í. Sérhver Auðlindahópur á að standa á eigin fótum og hafna utanaðkomandi fjárhagsaðstoð. Það má ekki vera neitt sem ógnar sjálfstæði hvers Auðlindahóps, né hafa áhrif á starfsemi hans, hvaða niðurstöður koma út úr starfi hans eða hverjir koma að vinnu hans. Á meðan unnið er að Málefni erum við sjálfstæð heild innan Málefnisins og svörum bara til Hugmyndaráðuneytisins varðandi Málefnið. Sérhver Auðlindahópur á að vera sjálfstæður nema í málum er varða aðra Auðlindahópa eða Hugmyndaráðuneytið í heild. Hver Auðlindahópur ber ábyrgð á sjálfum sér og þarf að virða vinnureglur sem viðhafðar eru innan Hugmyndaráðuneytisins. Hann starfar sjálfstætt og velur sér fulltrúa til að vera í forsvari fyrir hópinn. Auðlindahópurinn stýrir sínu fundarformi sjálfur, hvernig hópurinn vinnur og hverju hann skillar frá sér. Auðlindahópar taka ekki afstöðu til annarra málefna en sinna eigin. Nafni þeirra ætti því að halda utan við deilur og dægurþras. Hver Auðlindahópur blandar sér ekki í starf annarra Auðlindahópa en það geta verið snertifletir sem tengja sama Auðlindahópa. Ef það koma upp snertifletir þá vinna þeir saman að heilindum og tjá sig um þá fleti sem snertast. Auðlindahópar Hugmyndaráðuneytisins eiga aldrei að ljá ótengdum samtökum eða málstað nafn sitt eða fylgi svo eignir eða upphefð fjarlægi okkur ekki upphaflegum tilgangi. Auðlindahóparnir eru ramminn á innra starfi Hugmyndaráðuneytisins, farvegur Málefna og hjálpar okkur að skilgreina frekar hvað við erum að gera og eru einungis starfandi innan Hugmyndaráðuneytisins. Afstaða okkar út á við byggist fyrst og fremst á aðlögun en ekki áróðri. Þegar við tjáum okkur um Málefni þá sáum við fræjum sem samfélagið tekur að vild og ræktar og gerir að sínu. Við rekum ekki áróður í Málefnum heldur bendum á það sem betur má fara. Málefnin eru andlegur grundvöllur allra vinnu okkar og minna okkur á að setja málefni og markmið ofar eigin hag. Við erum saman komin út af Málefnum og þessvegna eru Málefnin grunnurinn að okkar samfélagi í Hugmyndaráðuneytinu. Við skulum ekki gleyma markmiði okkar sem er að stuðla að betra samfélagi fyrir okkur öll. |
Hugmyndaráðuneytið: Ráðuneyti grasrótarinnar. Byggjum upp næsta Ísland
Það er auðvelt að taka þátt. Gerstu meðlimur og byrjaðu að raða niður atriðum eftir mikilvægi, eins og í aðgerðalista. Því fleiri sem gera forgangsmálin þín að sínum forgangsmálum, því hærra rís það í listunum. Því fleiri sem gerast meðlimir í samskiptanetinu, því meiri kraft höfum við til að láta hlutina gerast. |