Auðlindahópur Lóðsa

Mikið er búið gerjast í þjóðlífinu, hvort sem er innan þess opinbera eða hjá fyrirtækjum um að nýta hugmyndafræðina frá Þjóðfundi (brainstorming/facilitation). Það eru mikil verðmæti fólgin í því að halda hópinn og þróa þessa hugsun áfram. Sem ‘auðlindahópur’ þá geta þeir sem hafa áhuga tekið hitting stöku sinnum til að bera saman bækur og þróa aðferðina áfram. T.d. gætu stofnanir eða ráðgjafafyrirtæki haft samband við einstaklingana úr þessum hóp ef upp koma verkefni. Skráðu þig á eftirfarandi póstlista til þess að taka þátt í að þróa lóðs aðferðina áfram:

Hugmyndaráðuneytið: Ráðuneyti grasrótarinnar. Byggjum upp næsta Ísland

Það er auðvelt að taka þátt. Gerstu meðlimur og byrjaðu að raða niður atriðum eftir mikilvægi, eins og í aðgerðalista. Því fleiri sem gera forgangsmálin þín að sínum forgangsmálum, því hærra rís það í listunum. Því fleiri sem gerast meðlimir í samskiptanetinu, því meiri kraft höfum við til að láta hlutina gerast.