Vefurinn er í hraðri þróun - takk fyrir að 'beta' prófa. Þú getur hjálpað við próförk: vefur@hugmyndaraduneytid.is. Takk.
 

Hugmyndaráðuneytið

Hugmyndaráðuneytið er grasrótar ráðuneyti og samfélagsverkefni sem byggir á sjálfboðavinnu og tók til starfa í ársbyrjun 2009. Auk öflugst vetvangs á netinu stendur Hugmyndaráðuneytið einnig fyrir reglulegum hópfundum þar sem frumkvöðlar, hugsuðir og fagmenn frá ólíkum sviðum atvinnulífins, háskólunum og stjórnsýslunni hittast og skiptast á hugmyndum, reynslusögum, hlusta á fyrirlestra, mynda tengsl og veita hvert öðru stuðning til framkvæmda.

Áhersla er lögð á jákvæðni og tækifæri. Hugmyndaráðuneytið leggur einnig sín lóð á vogaskálarnar í málefnum þar sem það telur sig geta látið gott af sér leiða.

Hugmyndaráðuneytið hittist alla miðvikudaga kl. 20.00 á hentugum stað í Reykjavík og er aðgangur ókeypis. Einnig er Hugmyndaráðuneytið með fastan tíma í morgunútvarpi á Bylgjunni kl. 7:45 alla föstudagsmorgna.

Takið þátt í uppbyggingu Íslands!

Manifesto

1. Við erum ópólítísk
2. Við viljum vinna með öllum, óháð hagsmunum
3. Við erum ekki græn, grá eða gul. Við erum óháð stefnum
4. Við eflum fólk með góðar hugmyndir til góðra starfa
5. Við búum yfir reynslu og þekkingu sem við kappkosta miðlum áfram
6. Við tengjum saman fólk með hugsjónir
7. Við erum grasrótin, öllum opin
8. Við hugsum í góðum tilgangi
Hugmyndaráðuneytið: Ráðuneyti grasrótarinnar. Byggjum upp næsta Ísland

Það er auðvelt að taka þátt. Gerstu meðlimur og byrjaðu að raða niður atriðum eftir mikilvægi, eins og í aðgerðalista. Því fleiri sem gera forgangsmálin þín að sínum forgangsmálum, því hærra rís það í listunum. Því fleiri sem gerast meðlimir í samskiptanetinu, því meiri kraft höfum við til að láta hlutina gerast.